Velkomin á LitaSköpun
LitaSköpun er kennsluvefsíða tileinkuð litun á textíl – þar sem sköpunargleði, litagleði og fræðsla mætast! Hér lærir þú hvernig á að umbreyta einföldum bolum og efnum í einstök listaverk með fjölbreyttum litunaraðferðum eins og kúlugraffíti, litasköfun og vaxlitaprenti. Hvort sem þú ert nemandi, kennari eða áhugasamur um textíl færðu hér:
- Skref fyrir skref leiðbeiningar
- Hugmyndir að verkefnum
- Innblástur til að gera þitt eigið
- Sjálfbærar og umhverfisvænar lausnir
LitaSköpun er bæði námsverkefni og samfélag þar sem litir og sköpun fá að blómstra. Kíktu á verkefnin, pófaðu að lita og deildu eigin útgáfu af list.
Aðferðir

Kúlugraffíti

Litasköfun

Vaxlitaprent
„LitaSköpun er þar sem hugmyndir verða að mynstri.“
Um LitaSköpun
LitaSköpun er kennsluverkefni og hugmyndasafn þróað af Ernu Rafnsdóttur, með áherslu á skapandi textílaðferðir í menntun. Markmið verkefnisins er að styðja við listræna og gagnvirka kennslu, með áherslu á endurnýtingu, sjálfbærni og sköpunarfrelsi nemenda.
Erna hefur unnið að því að þróa einfaldar og aðgengilegar leiðir til að nýta listgreinar sem hluta af fjölbreyttri og eflandi skólastarfsemi.